Hlíðarfjall
Lj�s
Mikð rosalega var gaman í skíðaferðinni á föstudaginn. Ég dreif mig upp í fjall með forngripina mína sem hafa ætíð reynst mér vel (yfir 20 ára græjur). ´
Ég byrjaði á því að leigja mér bretti, afar hugrökk fannst mér, og fór nokkrar veltur á því. Þá var komið að skella sér á forngripina en þá vildi nú ekki betur til en eitthvað höfðu þessar öndvegis bindingar færst úr stað (líklega í flutningunum í sumar) og ekki hægt að hrófla við þeim hvernig svo sem reynt var. Reyndar sagðist starfsmaðurinn ekki þekkja svona bindingar vel enda ungur maður.
Og þannig kom það til að ég leigði mér þessi fínu Head skíði. Fislétt og feikigóð. Ég dreif mig svo í nýju stólalyftuna og mér til halds og traust var ungur nemandi minn og allt gekk þokkalega vel. Nú svo var bara skíðað og skíðað, færið var gott og veðrið meiriháttar, sól og blíða. Þar sem skíðin hentuðu mér vel skellti ég mér upp í strýtu og fór léttilega niður aftur.
Nú er ljóst að ég verð að eignast ný skíði. Forngripirnir mínir hafa runnið sitt skeið á enda.